Iðnaðarryksuga DE110 frá Husqvarna
Iðnaðarryksuga DE110 frá HusqvarnaIðnaðarryksuga DE 110 er frábær ryksuga frá Husqvarna. Hún er einstaklega fjölhæf og öflug iðnaðarryksuga auk þess sem hún er fyrirferðalítil, auðveld í flutningi og með góða vörn gegn vatni.
Iðnaðarryksugur sem stilla loftflæðið sjálfkrafa
Iðnaðarryksugur DE 110 eru eins fasa og 200 mbar ryksugur sem útbúnar eru notendavænu stjórnkerfi sem fylgist með afköstum og eru með e-flow aðgerð sem stillir loftflæðið sjálfkrafa.
Iðnaðarryksuga með vottaðri Hepa síu
DE110 er iðnaðarryksuga sem útbúin er HEPA síu með EN1822 vottun sem er aðskilin forsíunni. Hún hentar því einstaklega vel í byggingarvinnu til að soga burt steinryk og annað rusl sem til fellur.
Iðnaðarryksuga sem sýnir keyrslutíma ofl
Iðnaðarryksuga býður uppá innbyggða tengingu sem gerir kleift að fylgjast með staðsetningu, keyrslutíma, þjónustustöðu og síustöðu ásamt öðrum dýrmætum gögnum um notkun ryksugunnar.
Iðnaðarryksugur fyrir gólfslípun og minni verkfæri
Iðnaðarryksugur DE110 henta vel með litlum gólfslípivélum og minni verkfærum en ryksugun er mikilvæg við slípun gólfa út frá heilsufars sjónarmiðum og til að fyrirbyggja að allt verði undirlagt í ryki.
Iðnaðarryksugur með ryklaus pokaskipti
Iðnaðarryksugur DE110 eru með Longopac pokakerfið sem tryggir einföld og ryklaus pokaskipti. Hér má sjá fræðsluefni um viðhald á ryksugum, hreinsun á forsíum og hvernig skipta eigi um Hepa síu.
Iðnaðarryksuga | DE 110 |
---|---|
Þyngd ryksugu | 25 kg |
Fasar | 1 |
Mótor | 1,1 kW |
Afl | 230 V |
Hámarks sogkraftur | 200 mbar |
Hæð | 1.000 mm |
Lengd | 670 mm |
Breidd | 400 mm |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Vörunúmer | 96970509401 |
DE 110 iðnaðarryksuga er sambærileg ryksugu S13 frá Husqvarna.
Deila




Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.