Iðnaðarryksuga DE120 frá Husqvarna
Iðnaðarryksuga DE120 frá Husqvarna
Ryksuga DE120H er ný iðnaðarryksuga frá Husqvarna og kemur í stað iðnaðarryksugu S26.
Iðnaðarryksuga fyrir gólfslípun með meðalstórum gólfslípivélum
Iðnaðarryksugur DE120 henta vel með meðal stórum gólfslípivélum t.d. PG400 og stórum handverkfærum þar sem ryksugun er mikilvæg út frá heilsufari og til að fyrirbyggja að allt verði undirlagt í ryki.
DE120 er öflug, fjölhæf og fyrirferðalítil iðnaðarryksuga
DE120 er ótrúlega öflug iðnaðarryksuga frá Husqvarna þrátt fyrir að vera fyrirferðalítil og auðveld í flutningi. Hún er með góða vörn gegn vatni og er tilvalin fyrir krefjandi verkefni.
Iðnaðarryksuga sem stillir loftflæðið sjálfkrafa
Iðnaðarryksuga DE 120 er eins fasa og 200 mbar ryksuga sem útbúin er notendavænu stjórnkerfi sem fylgist með afköstum og er með e-flow aðgerð sem stillir loftflæðið sjálfkrafa.
Iðnaðarryksuga með vottaðri Hepa síu fyrir byggingarvinnuna
DE120 er iðnaðarryksuga sem er útbúin EN1822 vottaðri HEPA síu sem er aðskilin forsíunni. Hún hentar þess vegna einstaklega vel í byggingarvinnu til að soga burt steinryk og annað rusl sem til fellur.
DE120 Iðnaðarryksuga sýnir staðsetningu, þjónustustöðu ofl
Iðnaðarryksuga býður uppá innbyggða tengingu sem gerir kleift að fylgjast með staðsetningu, keyrslutíma, þjónustustöðu og síustöðu ásamt öðrum dýrmætum gögnum um notkun ryksugunnar.
Iðnaðarryksugur með ryklaus pokaskipti
Iðnaðarryksugur DE 120 eru með Longopac pokakerfið sem tryggir einföld og ryklaus pokaskipti. Hér má sjá fræðsluefni um viðhald á ryksugum, hreinsun á forsíum og hvernig skipta eigi um Hepa síu.
Iðnaðarryksuga | DE 120 |
---|---|
Þyngd ryksugu | 39 kg |
Fasar | 1 |
Mótor | 2,2 kW |
Hámarks sogkraftur | 200 mbar |
Hæð | 1.125 mm |
Lengd | 815 mm |
Breidd | 542 mm |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Vörunúmer | 96970514801 |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.