Verktakar bera ekki aðeins ábyrgð á sinni eigin heilsu og öryggi þegar notaður er búnaður sem myndar ryk heldur bera þeir einnig ábyrgð á heilsu þeirra sem vinna í kringum þá.
Kraftmikil iðnaðarryksuga tryggi góða ryklosun
Lykillinn að góðri ryklosun og lofthreinsun er að tryggja að notað sé nægilega kraftmikil iðnaðarryksuga og að grípa rykið eins nálægt rykmynduninni og mögulegt er.
Ryk getur valdið sliti á vélum og búnaði
Ryk á vinnustað getur aukið slit á vélum og tækjum auk þess sem það getur verið hættulegt að leyfa því að dreifast um vinnusvæði. Husqvarna býður því samþættar lausnir á ryksugum fyrir gólfslípivélar.
Að halda ryki í skefjum með vatni
Ein besta leiðin til að halda ryki í skefjum er með því að nota vatn þar sem það er hægt t.d. við blautslípun, blautborun, blautsögun eða gólfhitafræsun og soga vatnið og drulluna upp jafnóðum.
Ávallt skal nota öfluga iðnaðarryksugu við gólfslípun
Ávallt ætti að nota öfluga iðnaðarryksugu með góða afkastagetu við gólfslípun en auk þess ætti ryksugan ávallt að vera með HEPA H13 síum.
Dragðu úr ryki með lofthreinsitæki
Einnig er hægt að draga enn frekar úr magni öndunarryks í loftinu að nota sérstakan lofthreinsitæki frá Husqvarna sem búinn er vottuðum HEPA H13 síum með 99,99% skilvirkni við 0,3 míkron.
Rykagnir á byggingasvæðum geta verið skaðlegar
Rykagnir á byggingarsvæðum geta innihaldið skaðleg efni svo sem asbesttrefjar, kristallaður kísill, mygla, sót, PCB og ákveðnar örverur sem eru litlar og ósýnilegar berum augum
Notaðu vottaðar iðnaðarryksugur og lofthreinsitæki
Notkun á vottuðum hágæða iðnaðarryksugum og lofthreinsitæki auk notkunar á persónulegum rykvarnarbúnaði sem getur fangað jafnvel minnstu kísilagnir er besta leiðin til að meðhöndla ryk.
Hér má sjá úrval af öflugum iðnaðarryksugum og lofthreinsitækjum frá Husqvarna.
Á vef Husqvarna má nálgast nánari upplýsingar um hreinsun á ryki á vinnustöðum.
Myndir


