Fara að upplýsingum um vöru
1 af 7

Husqvarna

Iðnaðarryksuga DE130 frá Husqvarna

Iðnaðarryksuga DE130 frá Husqvarna
Venjulegt verð 693.144 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 693.144 kr
Tilboð Uppselt
með VSK.

Iðnaðarryksuga DE130H er afkastamikil eins fasa ryksuga frá Husqvarna sem ætluð er fyrir krefjandi, mikla og stöðuga notkun svo sem við gólfslípun og með stórum handverkfærum.

Iðnaðarryksuga með Hepa-síu og Auto-Pulse tækni

Þessi ryksuga er með Auto-Pulse tækni auk HEPA-síu með EN1822 vottun sem er aðskilin frá forsíunni en þetta hvorutveggja gefur möguleika á stöðugri ryksugun án handvirkrar síuhreinsunar. 

Þriggja þrepa síukerfi í iðnaðarryksugum DE frá Husqvarna

Allar Husqvarna iðnaðarryksugur DE þ.e. DE110, DE120 og DE130 eru með 3ja þrepa síukerfi sem virkar á eftirfarandi hátt:

  • Þrep 1: Hringrásarhólf (cyclone) skilur frá þyngstu rykagnirnar
  • Þrep 2: Stór forsía tryggir langan notkunartíma án truflana; hægt er að hreinsa hana á skilvirkan hátt utan frá með „jet pulse“-hreinsikerfinu
  • Þrep 3:  Prófuð og vottuð HEPA H13-sía sem fangar 99,95% af því kísilryki sem eftir er og þar með talið fínustu agnirnar (0,3 míkron) sem geta borist djúpt ofan í lungu

Iðnaðarryksuga Husqvarna með vottaða HEPA-síu

Allar HEPA síur í iðnaðarryksugum frá Husqvarna eru prófaðar og vottaðar til að veita sem besta síun á skaðlegu ryki þegar ryksugur eru keyrðar á fullum afköstum. HEPA síur 99,99% við 0,3 míkron 2. 

Þú færð nýja HEPA síu fyrir DE130 hjá okkur vörunúmer 96534123601 (534 12 36‑01)
Þú færð nýja forsíu fyrir DE130 hjá okkur vörunúmer 96546037201 (546 03 72‑01)

Vatnsþolin, traust og handhæg iðnaðarryksuga

Iðnaðarryksuga DE130H er mjög vel vatnsþolin (IP 55) sem gerir kleift að þrífa hana fljótt og vel. Þetta er traust og handhæg ryksuga sem er auðveld í flutningi þar sem hún er einstaklega nett.

Iðnaðarryksuga með endurbættu Longopac pokakerfi

Iðnaðarryksugur DE130 eru með Longopac pokakerfið sem tryggir einföld og ryklaus pokaskipti. Pokakerfið í ryksugu DE130 hefur verið endurbætt með sérstakri rykhlíf svo ekki safnist ryk í fellingunum.

Iðnaðarryksuga DE 130 H
Þyngd 48 kg
Fasar 1
Mótor 3 kW
Hámarks sogkraftur 275 mbar
Hæð 1.175 mm
Lengd 855 mm
Breidd 542 mm
Pokar Longopac slöngupokar
Vörunúmer 96970519501
(970 51 95-01)


Husqvarna

Skoða ítarlegar upplýsingar
Vantar þig nánari upplýsingar?

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.