Sanddreifari sjálfhlaðandi frá Fjärås
Sanddreifari sjálfhlaðandi frá FjäråsHafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandSaltdreifarar og sanddreifarar frá Fjärås.
Sanddreifari sjálfhlaðandi fyrir dráttarvélar og hjólaskóflur
Sjálfhlaðandi saltdreifari og sanddreifari fyrir dráttarvélar, hjólaskóflur og traktorsgröfur frá Fjärås í Svíþjóð.
Sjálfhlaðandi sanddreifarar í mörgum stærðum og gerðum
Þessir sanddreifarar eru framleiddir í nokkrum gerðum m.a. til að setja á ámoksturstæki og aftan á dráttarvélar. Hægt er að fá þá í mörgum stærðum eða allt frá 200 lítrum upp í 1.400 lítra.
Sanddreifarar drifnir af hjólabúnaði eða vökvakerfi tækis
Sanddreifarar með mulningsöxli og dreifiöxli sem fyrirbyggja kögglamyndun í efni. Þeir geta verið drifnir af eigin hjólabúnaði og eru þá veghraðatengdir. Eða drifnir af vökvakerfi ökutækis.
Sanddreifari heit-galvan húðaður og sjálfhlaðandi
Allir Fjärås sjálfhlaðandi saltdreifarar og sanddreifarar eru heit-galvan húðaðir og því með frábæra endingu.
Frábær hálkuvarnarbúnaður sem hægt er að mæla með!
Deila

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.