Pækildreifarar 250TR fyrir dráttarvélar
Pækildreifarar 250TR fyrir dráttarvélarHafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandPækildreifarar SprayStriker 250TR frá Hilltip eru framleiddir í Finnlandi. Þetta eru pækildreifarar fyrir dráttarvélar og er snilldar hálkuvarnarbúnaður fyrir íslenskar aðstæður.
Pækildreifarar fyrir minni dráttarvélar og liðléttinga
Pækildreifarar250TR eru hannaðir fyrir minni dráttarvélar og liðléttinga til notkunar á gangstéttum og öðrum þröngum svæðum þar sem erfitt er að komast að til að hálkuverja.
Pækildreifari 250TR er með tank úr pólýetýleni
Pækildreifari 250TR er með afkastamikla 12V dælu sem er sérstaklega hönnuð fyrir saltpækil. Pækildreifari 250TR er með tank úr pólýetýleni og yfirbyggingin er úr stáli sem er zink húðað og duft lakkað.
Pækildreifari með 12 metra slöngukefli
Pækildreifari 250TR fæst með 12 metra slöngukefli, þrem mismunandi breiddum af úðagreiðum, auk hliðarstúta sem stjórnað er frá fjarstýringu fyrir aukna úðabreidd.
Pækildreifari með StrikeSmart forriti og síma
Hilltip SprayStriker 250TR pækildreifari er afhentur með og er stjórnað með StrikeSmart snjallsímaforriti og er sími innifalinn.
Pækildreifari 250TR er með ferilskráningarkerfi HTrack
Pækildreifari 250TR er með Hilltip HTrack ferilskráningarkerfi en það er samhæfður ferilskráningarbúnaður fyrir allar snjótennur, salt-og sanddreifara og pækildreifara frá Hilltip.
Pækildreifari | 250TR |
Hæð | 120 cm |
Breidd | 90 cm |
Lengd | 70 cm |
Stærð tanks | 250 l |
Úðunar breidd | 0,8 - 5m m |
Afköst | 3-18 l/min |
Þyngd án efnis | 120 kg |
Deila





Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.