Jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa APF 15/40
Jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa APF 15/40
APF 15/40 er öflug jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa frá Ammann, 84 kg að þyngd og með 15 kN þjöppunarkraft.
Jarðvegsþjappa með hjólabúnað fyrir þjöppun á malbiki
Þjappa APF 15/40 þykir sérlega hentug fyrir þjöppun á malbiki og því fylgir henni vatnstankur og hjólabúnaður.
Jarðvegsþjappa með viðhaldsfrían víbrara
Tæknilega háþróaður víbrari á þjöppunni er viðhaldsfrír og veitir umtalsverðan kraft fyrir krefjandi verkefni og góða klifurgetu t.d. á bröttum stigum.
Jarðvegsþjappa fyrir þjöppun á hellum og steinalögn
Með jarðvegsþjöppu APF 15/40 er hægt að fá gúmmímottu sem nýtist fyrir þjöppun á hellulögnum og steinlögnum.
Þjappa með 400 mm vinnslubreidd
Grunnplatan á jarðvegsþjöppu APF 15/40 er með 400 mm vinnubreidd. Þjappan er fáanleg með annað hvort Honda, Vanguard eða Rato bensínvél.
Strangt gæðaeftirlit framleiðslu jarðvegsþjappa frá Ammann
Ammann jarðvegsþjöppur og malbikunarþjöppur eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti og hannaðar til að gefa öfluga þjöppun miðað við þyngd.
Malbikunarþjappa sem lágmarkar titring í handföngum
Þessi malbikunarþjappa hefur mjög góða titringsvörn sem lágmarkar titring í handföngum þjöppunnar og gefur þeim sem stýrir henni þægilegt vinnuviðmót.
Bætiefni fyrir bensín E10
Við mælum með að nota bætiefni fyrir E10 bensín til að vinna á móti slæmum áhrifum bensíns á vélarnar. Hægt er að kaupa þetta bætiefni hjá okkur.
Malbikunarþjappa/ jarðvegsþjappa | APF 15/40 |
Þyngd | 84 kg |
Þyngd með hjólum og tanki | 93 Kg |
Þjöppunarkraftur | 15 kN |
Vél | Honda GX 120, 2,9 kw |
Lengd plötu | 559 mm |
Breidd plötu | 400 mm |
Vörunúmer | 50000001440HWF |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.