Jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa APF 12/40
Jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa APF 12/40
Jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa APF 12-40 er næstminnsta jarðvegsþjappan frá Ammann og vegur 69 kg.
Skilvirk jarðvegsþjappa með Honda bensínvél
APF 12/40 er öflug og skilvirk jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa með Honda bensínvél sem veitir þjöppunni frábær afköst.
Umhverfisvæn jarðvegsþjappa
Þessi jarðvegsþjappa er umhverfisvæn, þökk sé framúrskarandi eldsneytisnotkun, lágmarks viðhaldsþörf og lágum hljóðstyrk.
Jarðvegsþjappa fyrir lítil jarðvegs-og malbikunarverkefni
Jarðvegsþjappa 12/40 virkar vel við margskonar aðstæður en er almennt notuð í litlum jarðvegs- og malbikunarverkefnum.
Þjöppur með 10 lítra vatnstank
Þessar þjöppur eru með 10 lítra vatnstank sem er stór fyrir þessa þjöppustærð en er kostur sem margir verktakar kunna að meta.
Öflug þjappa með mjög góða titringsvörn
Jarðvegsþjöppurnar frá Ammann hafa mjög góða titringsvörn sem lágmarkar titring í handföngum þjöppunnar og gefur þannig þægilegt vinnuviðmót.
Jarðvegsþjappa 12/40 með gúmmímottu
Með þessari jarðvegsþjöppu er hægt að fá gúmmímottu sem nýtist við þjöppun á hellum og steinlögnum.
Jarðvegsþjöppur sem gefa öfluga þjöppun miðað við þyngd
Ammann jarðvegsþjöppur eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti og hannaðar til að gefa öfluga þjöppun miðað við þyngd.
Bætiefni fyrir bensín E10
Við mælum með að nota bætiefni fyrir E10 bensín til að vinna á móti slæmum áhrifum bensíns á vélarnar. Hægt er að kaupa þetta bætiefni hjá okkur.
Jarðvegsþjappa og malbikunarþjappa | APF 12/40 |
Þyngd | 69 kg |
Þyngd með hjólum og tanki | 76 kg |
Lengd grunnplötu | 540 mm |
Lengd plötu við jörð | 371 mm |
Þjöppunarkraftur | 12 kN |
Vél | Honda GX 120/2.6 kW |
Breidd þjöppu | 400 mm |
Vörunúmer | 50000001439HWF |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.