Fara að upplýsingum um vöru
1 af 7

Ammann

Jarðvegsþjappa APF 10/33 Ammann

Jarðvegsþjappa APF 10/33 Ammann
Venjulegt verð 326.279 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 326.279 kr
Tilboð Uppselt
með VSK.
Með eða án vatnstanks

Jarðvegsþjappa APF 1033 er léttasta og minnsta jarðvegsþjappan í þjöppu úrvali Ammann eða einungis 54 kg.

Lítil jarðvegsþjappa fyrir minni vinnusvæði

APF 1033 jarðvegsþjappan er lítil og handhæg og hentar vel fyrir lítil vinnusvæði og afmörkuð svæði. Hún nýtist einstaklega vel þar sem erfitt er að koma stærri jarðvegsþjöppum að.

Jarðvegsþjappa með vatnstanki fyrir þjöppun á malbiki

Þessi jarðvegsþjappa fæst bæði með og án vatnstanks og nýtist þá vel við þjöppun á malbiki. Þó þjappan sé lítil gefur hún öfluga þjöppun miðað við þyngd.

Jarðvegsþjöppur með öfluga bensínvél

Þessi þjappa hefur mjög góða titringsvörn sem lágmarkar titring í handföngum þjöppunnar og gefur þannig þægilegt vinnuviðmót. Hún er með öfluga og áreiðanlega bensínvél.

Jarðvegsþjappa sem auðvelt er að flytja á milli staða

Auðvelt er að færa þjöppuna á milli vinnustaða. Þegar vinnu með jarðvegsþjöppunni er lokið ætti að vera hægt að skutla þessari litlu og nettu þjöppu í skott á fólksbíl. 

Bætiefni fyrir bensín E10

Við mælum með að nota bætiefni fyrir E10 bensín til að vinna á móti slæmum áhrifum bensíns á vélarnar. Hægt er að kaupa þetta bætiefni hjá okkur. 

Jarðvegsþjappa APF 10/33
Þyngd 54 Kg
Þjöppunarkraftur  10,5 kN
Vél Honda GX 120, 2,9 kw
Lengd plötu 497 mm
Breidd plötu 330 mm
Stærð HxLxB mm 1100x655x330
Vörunúmer án vatnstanks 500000010H33APF
Vörunúmer með vatnstanki 500000010H33W

Ammann

Skoða ítarlegar upplýsingar
Vantar þig nánari upplýsingar?

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.