Gátskildir stefnuvirkir 904F1 904F2
Gátskildir stefnuvirkir 904F1 904F2Gátskildir WeBaNi40 frá Nissen eru stefnuvirkir gátskildir númer 904F1 904F2 (áður K30.22 og K30.21) . Þetta eru hágæða gátskildir sem framleiddir eru í Þýskalandi.
Gátskildir viðsnúanlegir með örvar í tvær áttir
Gátskildir WeBaNi40 eru stefnuvirkir og viðsnúanlegir 180° (reversible) með örvar í tvær áttir.
Gátskjöldur með standrör úr áli
Gátskjöldur er með standrör úr áli í fullri lengd sem hægt er að skipta út. Auðvelt er að festa viðvörunarljós á þessa gátskildi t.d. blikkljós BakoLightLED.
Gátskildir eru mikilvægir fyrir umferðaröryggi við framkvæmdir
Gátskildir og annar umferðaröryggisbúnaður er mikilvægur til að tryggja öryggi vegfaranda og framkvæmdaaðila við vinnusvæði og framkvæmdarsvæði.
Gátskildir og rétt fótstykki tryggja stöðugleika
Þegar gátskildir eru settir upp við framkvæmdir er mikilvægt að koma þeim vel fyrir í réttum fótstykkjum sem tryggja stöðugleika.
Reglur um gátskildi á vinnusvæðum
Samkvæmt reglum um vinnusvæðamerkingar á vef Vegagerðarinnar má sjá reglur um gátskildi í kafla 4.3.4.
Gátskildir | WeBaNi60 |
Þyngd | 3,7 kg |
Stærð | 1400x300x54 mm |
Efni tengistykkis | Ál |
Stærð tengist. | 40mm x 40mm |
Númer hjá Vegagerð | 904F1 og 904F2 |
Vörunúmer | 41 070321-2 |
Deila





Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.