Gátskildir Standard Beacon K30.11 og K30.12
Gátskildir Standard Beacon K30.11 og K30.12
Þýskir gátskildir, Standard Beacon, í hæsta gæðaflokki frá Nissen.
Gátskjöldur fyrir merkingar vinnusvæða
Gátskjöldur frá Nissen er í staðlaðri stærð ætlaður til að merkja vinnusvæði og vekja athygli á vegaframkvæmdum. Hægt er að fá fótstykki fyrir þessa gátskildi.
Gátskildir með 250mm x 1000mm endurskin
Gátskildirnir eru með stærð endurskins 250 x 1.000 mm. Hægt er að fá gátskildi með endurskini á báðum hliðum, hægri eða vinstri vísandi.
Gátskildir sem hægt er að endurvinna
Á Standard Beacon gátskjöldum er ekkert innra stálrör og er því hægt að endurvinna þá án aðskilnaðar á efni. Þessir gátskildir eru framleiddir samkvæmt Evrópu staðli.
Gátskildir fyrir LED blikkljós
Auðvelt er að festa Nissen MonoLight LED blikkljós á Standard Beacon gátskildi frá Nissen.
Gátskildir hluti af öryggismerkingum við framkvæmdir
Mikilvægt er að nota öryggismerkingar svo sem gátskildi, umferðarkeilur, öryggisljós og öryggisgirðingar við framkvæmdir til að tryggja öryggi vegfaranda og framkvæmdaaðila.
Gátskildir K30.12 vísa til hægri og K30.11 vísa til vinstri
Skv. reglum Vegagerðarinnar um vinnusvæðamerkingar eru Standard Beacon gátskildirnir númer K30.12 með vísun til hægri og K30.11 með vísun til vinstri.
Gátskildir og reglur um vinnsuvæðamerkingar
Samkvæmt reglum um vinnusvæðamerkingar - 17. útg. mars 2021 á vef Vegagerðarinnar má sjá reglur um gátskildi og númer þeirra í kafla 4.3.4.
Gátskildir | Standard Beacon |
Þyngd | 2,6 kg |
Stærð | 1335 x 287 x 60 mm |
Efni tengistykkis | Plast |
Stærð tengist. | 60mm x 60mm |
Vísun til hægri | K30.12 |
Vísun til vinstri | K30.11 |
Vörunúmer | 41 070 236-204 |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.