Forsuga Husqvarna C5500
Forsuga Husqvarna C5500
Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandForsuga C5500 frá Husqvarna er mjög afkastamikil forsuga til að tengja við aðra iðnaðarryksugu og sem ætluð er fyrir mjög stór slípiverkefni þar sem mikið er af ryki.
Forsuga til að tengja við stórar iðnaðarryksugur
Mælt er með að tengja forsugu C5500 við stórar iðnaðarryksugur svo sem eins og T7500 og T10000 frá Husqvarna.
Forsuga eykur soggetur iðnaðarryksugunnar
Þessi forsuga aðskilur 90% af ryki og öðru efni áður en það fer yfir í aðal ryksuguna sem eykur soggetuna til muna, lengir endingu mótorsins og dregur verulega úr tíðni viðhalds síunnar í ryksugunni.
Forsuga fyrir lengri verktíma
Þessa forsugu er hægt að nota bæði við blautslípun og þurrslípun. Með því að nota forsugu með iðnaðarryksugu fæst lengri verktími án truflana.
Forsuga fyrir mikið magn af léttu rykefni
Forsuga C5500 eykur getu aðal iðnaðarryksugunnar til að höndla efni sem venjulega eru talin erfið meðhöndlunar eins og sót, brennandi agnir, vökvi og létt efni í miklu magni.
Longopac® pokakerfið í forsugum C5500
Forsugur C5500 frá Husqvarna nota Longopac® pokakerfið sem tryggir að hægt sé að skipta um poka á alveg lokaðan og ryklausan hátt sem er mikilvægt bæði fyrir starfsmenn og vinnuumhverfið.
Forsuga | C5500 |
---|---|
Rúmmál tanks | 100 l |
Hæð | 1.640 mm |
Lengd | 600 mm |
Breidd | 720 mm |
Þyngd | 46 kg |
Ryksugur sem mælt er að tengja við | T7500 T10000 |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Vörunúmer | 96967664601 |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.