Forsuga Husqvarna C3000
Forsuga Husqvarna C3000
Forsuga C3000 frá Husqvarna er afkastamikil forsuga sem ætluð er fyrir stór slípiverkefni. Forsugur eru iðnaðarryksugur til að tengja við aðrar ryksugur svo hægt sé að höndla mikið magn af ryki.
Forsuga til að tengja við aðra iðnaðarryksugu
Mælt er með að tengja forsugu C3000 við iðnaðarryksugur S26 eða S36 frá Husqvarna en einnig er hægt að tengja hana við iðnaðarryksugur D20 og D30 frá HTC.
Forsuga fyrir aukna endingu á iðnaðarryksugum
Forsuga C3000 aðskilur 90% af ryki og öðru efni áður en það fer yfir í aðal ryksuguna sem eykur soggetuna til muna, lengir endingu mótorsins og dregur verulega úr tíðni viðhalds síunnar í ryksugunni.
Lengri verktími með notkun á forsíu
Með því að nota forsugu með iðnaðarryksugu við gólfslípun fæst lengri verktími án truflana. Þessi forsuga er ætluð til notkunar við þurrslípun en einnig við blautslípun.
Forsugur sem höndla erfið efni
Forsuga C3000 eykur getu iðnaðarryksugunnar til að höndla efni sem venjulega eru talin erfið meðhöndlunar eins og sót, brennandi agnir, vökvi og létt efni í miklu magni.
Forsugur C3000 með Longopac® pokakerfið
Þessar forsugur C3000 frá Husqvarna nota Longopac® pokakerfið en það tryggir að hægt sé að skipta um poka á alveg lokaðan og ryklausan hátt sem er mikilvægt fyrir umhverfið og starfsmenn.
Forsuga | C3000 |
---|---|
Rúmmál tanks | 37 l |
Hæð | 1.580 mm |
Lengd | 590 mm |
Breidd | 730 mm |
Þyngd | 27 kg |
Ryksugur sem hægt er að tengja við | S13 S26 S36 T4000 |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Vörunúmer | 96967664501 |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.