Armur UNA500 fyrir trjáklippur og sláttuvélar
Armur UNA500 fyrir trjáklippur og sláttuvélarHafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandUNA 500 frá Ducker er fjölnota armur ætlaður fyrir trjáklippur, sláttuvélar og fleiri verkfæri. Armurinn getur unnið til beggja hliða og fram.
Armur fyrir dráttarvélar og vörubíla
Armur UNA500 er sérstaklega hannaður til að festa framan á vörubíla og dráttarvélar. Hann er með festingum fyrir DIN plötu og með hliðarfærslubúnaði.
Frábært til að slá gras og klippa trjágreinar við vegkanta
Að setja UNA500 arm með sláttuvél eða trjáklippum framaná dráttarvél er frábær leið til að slá gras eða klippa greinar meðfram vegköntum hvort sem er í sveit eða borg.
Vinnslubreidd frá miðri vél er 6,00 metrar
Þessi fjölnota armur er grunneiningin sem ætluð er til að tengja við ýmsan annan búnað svo sem sláttuvélar, trjáklippur, trjágreinasagir og fleiri verkfæri frá Ducker.
Armur með vökvabúnaði fyrir sláttuvél
Vökvabúnaður fyrir sláttuvél og önnur verkfæri er innbyggður og samanstendur af vökvatanki, dælu og öryggisloka. Drifið af aflúrtaki (PTO) stimpildæla afköst 47 l/mín 320 bar. Snúningur á aflúrtaki 650 sn/mín. Drifskaft fylgir.
Stjórnbúnaður með lyklaborði og skjá fyrir UNA500 arm
Hægt er að fá viðbótar stjórnbúnað, Elektro-hydraulic Proportional CAN-BUS, til að stjórna vali á milli sláttuvélar og trjáklippubúnaðar. Hann er með lyklaborði, skjá sem sýnir aðgerðir og stýripinna (Danfoss Roller Joystick). Skjárinn nýtist jafnframt fyrir bilanaleit.
Deila

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.