Vökvunar-armur HWA Watering Arm
Vökvunar-armur HWA Watering ArmHafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandVökvunar-armur HWA 5–9 frá Hilltip eða Watering Arm eins og þeir kalla hann
Vökvunararmur fyrir pallbíla, vörubíla og dráttarvélar
Vökvunararmur HWA 5–9 fyrir pallbíla, vörubíla og dráttarvélar og er ætlaður fyrir vökvun og úðun á vatni t.d. við viðhald vega og til rykeyðingar. Festur með festingu fyrir snjótennur Hilltip.
Vökva armur notaður með pækildreifurum
Hilltip HWA 5–9 vökvunararmur er fjölhæf lausn og hannaður til notkunar með Hilltip SprayStriker pækildreifurum sem og öðrum samhæfðum dreifurum.
Vökvunar armur sem fæst í þrem stærðum
Hægt er að fá HWA vökvunar-arminn í þrem stærðum með drægni upp á 5-9 metra, þar með talin armlengd og úði, sem gerir kleift að ná skilvirkri þekju á stóru svæði.
Þú þværð umferðarskilti og vegstikur með arminum
Hægt er að fá háþrýstikerfi eða samsett kerfi með lágum og háum þrýstingi og breyta þannig arminum í þvottaarm til að þvo t.d. umferðarskilti og vegstikur.
Kynning á HWA Watering Arm
Á sýningu Hilltip sumarið 2026 var verið að kynna þennan nýja vökvunar-arm eða HWA Watering Arm. Þú getur horft á þetta video frá mínútu 4:45 til að sjá kynninguna.
| Vökvunar armur | HWA-5 | HWA-7 | HWA-9 |
| Flutningshæð | 1,83 m | 2,83 m | 3,83m |
| Vinnuhæð | 2,7 m | 4,5 m | 6,3 m |
| Dreifing | 5 m | 7 m | 9 m |
| Þyngd | 100 kg | 115 kg | 130 kg |
| Snúningshorn | 185° | 185° | 185° |
Deila

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.