TMA Árekstrarpúði Rambo II frá Nissen
TMA Árekstrarpúði Rambo II frá Nissen
Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandTMA árekstrarpúði eða öryggispúði Rambo II
Árekstrarpúði, öryggispúði, eykur öryggi við vegaframkvæmdir
Árekstrarpúði eða öryggispúði Rambo II frá Nissen er ætlaður til að setja aftaná bíla. Þetta er mikilvægur öryggisbúnaður til að auka vinnuöryggi og umferðaröryggi við framkvæmdir á vegum.
TMA Árekstrarpúðar höggdeyfandi árekstrarvernd
Árekstrarpúðar eru höggdeyfandi árekstrarvernd eða TMA Truck Mounted Attenuator. Árekstrarpúði Rambo II er öryggisbúnaður sem uppfyllir alþjóðlega staðla og sker sig úr vegna margra kosta.
Árekstrarpúði höggdeyfir eykur öryggi við lokun akbrauta
Árekstrarpúði eða höggdeyfir skapar mikið umferðaröryggi fyrir starfsfólk og vinnutæki á vettvangi við lokun akbrauta auk öryggis fyrir vegfarendur.
Árekstrarpúði með ljósaör og höggdeyfi
Þessi árekstrarpúði Rambo II samanstendur annars vegar að sértækri lýsingu með ljósaör og hins vegar öryggispúða eða höggdeyfi ef um aftanákeyrslu er að ræða.
Árekstrarpúði festur á ökutæki með tengikví
Árekstrarpúðinn er festur á ökutækið með tengikví og vökvabúnaður sér um að fella það út til notkunar. Þegar púðinn er ekki í notkun heldur vökvakerfið púðanum í lóðréttri stöðu sem sparar pláss.
Árekstrarpúði Rambo II fyrir 7,5 tonna og stærri ökutæki
Mælt er með RAMBO II árekstrarpúða til notkunar á 7,5 tonna eða stærri ökutæki. Hægt er að útbúa hann með margskonar öryggisljósum, ljósaörvum og LED öryggisskiltum fyrir mismunandi aðstæður.
Sjá reglur árekstrarpúða á vinnusvæðum
Á vef Vegagerðarinnar má sjá reglur um vinnusvæðamerkingar - 17. útg. mars 2021. Á bls 24 er hægt að sjá reglur um höggdeyfandi árekstrarvernd eða TMA.
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.