Slípiklossar EZ fyrir gólfslípivélar
Slípiklossar EZ fyrir gólfslípivélarHafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa samband.Slípiklossar EZ frá Husqvarna fyrir gólfslípun á steinsteyptum gólfum með gólfslípivélum.
Demantsverkfæri fyrir gólfslípun á steingólfum
Slípiklossar EZ eru demantsverkfæri fyrir gólfslípun sem þróuð hafa verið til notkunar á steinsteyptum gólfum. Þessir slípiklossar eru mjög skilvirkir jafnvel á hörðustu steingólfum.
Slípiklossar EZ í 6 flokkum skv Mohs kvarða
Slípiklossar EZ eru flokkaðir í 6 flokka þ.e. XS, S, M, H, X og SharXX en þessir flokkar eru í samræmi við Mohs hörku-kvarðan svo auðvelt er að velja rétta slípiklossa fyrir hvert yfirborð.
Veldu rétta slípiklossa miðað við hörku gólfs
Með einföldu hörku-prófi Mohs eða svokölluðu rispuprófi er hægt að ákvarða hörku gólfsins. Þegar vitað er hver harka gólfsins er þá er hægt að velja réttu slípiklossana.
Slípiklossar EZ nota festingar EZchange wing airflow
EZchange wing festingar eru sérstaklega hannaðar fyrir EZ slípiklossana. Einstök lögunin gerir lofti kleift að flæða í gegnum festinguna sem lækkar hitastig um 10% samanborið við venjulegar festingar.
Úrval af slípiklossum fyrir slípun steypugólfa
Hægt er að velja um fimm grófleika þ.e 16, 25, 30, 50, 100.
Flokkarnir XS, S, M, H, X, SharXX eru í samræmi við Mohs-hörkukvarðann sbr eftirfarandi
| Slípikubbar | Harka |
| ELITE-GRIND EZ XS | 1-3 |
| ELITE-GRIND EZ S | 2-3 |
| ELITE-GRIND EZ M | 3-5 |
| ELITE-GRIND EZ H | 5-6 |
| ELITE-GRIND EZ X | 6-8 |
| ELITE-GRIND EZ SHARXX | 8-10 |
Þarftu hjálp við að velja réttu slípikubbana?
Þú getur notað verkfæraval Husqvarna til að velja og kaupa réttu demantverkfærin fyrir gólfslípiverkefnin. Þú þarft bara að setja inn upplýsingar um efni, áferð, yfirborðsstærð og búnað.
Deila

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.