Rafdrifnar hjólbörur ES-500/ES-500 slim
Rafdrifnar hjólbörur ES-500/ES-500 slim
Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandRafdrifnar hjólbörur ES-500/ES 500 slim frá Twinca eru litlar rafmagnshjólbörur sem henta vel við þröngar aðstæður. Þessar rafdrifnu hjólbörur eru þróaðar með áherslu á nýstárlega hönnun og sjálfbærni með allt að 500 kg burðargetu.
Rafmagnshjólbörur ES-500 og ES 500 slim eru með vökvalyftu með losunarhæð allt að 1307 mm sem tryggir örugga, auðvelda og vandræðalausa losun og eru því eru m.a. upplagðar til að losa efni í gáma.
ES-500 slim útgáfan af Twinca rafmagnshjólbörum er enn grennri en útgáfa E-500 slim og kemst því í gegnum þrengri op og ganga. Heildarbreidd hennar er 742 mm og hún er hönnuð fyrir kirkjugarða, garða/garðyrkju sem og niðurrif inni og úti o.s.frv..
Í rafdrifnar hjólbörur frá Twinca eru eingöngu notaðar hágæða rafhlöður með langan þjónustutíma (800 til 1000 hleðslur) til að lágmarka rekstrar- og viðhaldskostnað. AC stýri tryggir hámarks tog og hraða, jafnvel við litla rafhlöðuspennu.
Twinca rafmagnshjólbörur koma með uppblásnum breiðum hjólum sem valda ekki skemmdum á viðkvæmu yfirborði eins og grasi.
Twinca rafdrifnar hjólbörur menga ekki og við hönnunina er leitast við að draga úr áhrifum á umhverfi og heilsu.
Frábærar mótor hjólbörur með hljóðlausum akstri.
Þessar rafdrifnu hjólbörur eru ýmist kallaðar rafbörur, rafhjólbörur, vélbörur, vélhjólbörur, rafmagnshjólbörur, mótor hjólbörur eða rafknúnar hjólbörur.
Rafdrifnar hjólbörur | ES-500/ES-500 slim |
Hraði | 0-6 km/klst |
Rafhlaða | 2 x 12 V /112 Ah |
Hleðslutími | 4-5 klst |
Rúmtak | 250 lítrar |
Burðargeta | Allt að 500 kg |
Lyftihæð | 2708/2712 mm |
Sturtuhæð | 1304/1307 mm |
Hleðsluhæð | 976/979 mm |
Þyngd | 417/463 kg |
Hæð | 976/979 mm |
Lengd | 1790 mm |
Breidd | 797/742 mm |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.