Fara að upplýsingum um vöru
1 af 4

Ammann

Malbiksvaltari ARX23-2 frá Ammann 2.230 kg

Malbiksvaltari ARX23-2 frá Ammann 2.230 kg

Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.

Hafa samband

ARX 23-2 malbiksvaltarinn er  2.230 kg að þyngd. 

Ammann ARX 23-2 malbiksvaltari er með 1000 mm breiðar tromlur og er fær um að vinna nálægt hindrunum svo sem eins og kantsteinum.

ARX 23-2 malbiksvaltari er með vél af gerðinni Kubota D1803-CR sem uppfyllir útblástursstaðla fyrir Evrópu,  ESB Stage V og Tier 4 Final.

Þessi valtari er með mælaborð með skýrum skjá með leiðandi stýringu  og nýtt LED ljósakerfi auk þess sem hann hefur verið endurhannaður að framan og aftan. Minni hljóðstyrkur og nýtt ljósakerfi bætir öryggi bæði fyrir stjórnanda valtarans og vinnuumhverfið.  Valtarinn er með rúmgóðan stjórnpall með þægilegu ökumannssæti.

Malbiksvaltari ARX 23-2 hefur háþróaða akstursstýringu fyrir mýkri ræsingu og stöðvun þegar valtarinn er í gangi. Fullkomin yfirsýn er frá valtaranum allan hringinn sem hámarkar öryggi á vinnustaðnum.

Hægt er að fá ARX 23-2  Combi útfærslu, sjá ARX 23-2C.

Malbiksvaltari ARX 23-2 Upplýsingar
Lengd valtara 2500 mm
Hæð valtara 2550 mm
Breidd valtara 1130 mm
Breidd tromlu 1.000 mm
Þvermál tromlu 580 mm
Þyngd 2.230 kg
Ferða hraði 11 km/klst
Vél Kubota D1803-CR
Mengunarstaðlar EU Stage V, U.S. EPA Tier 4 Final
Tíðni I 58 Hz
Tíðni II 66 Hz
Eldsneytistankur 35 lítrar
Vatnstankur 190 lítrar


Skoða ítarlegar upplýsingar

Vantar þig nánari upplýsingar?

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.