Jarðvegsvaltari ARS200 frá Ammann
Jarðvegsvaltari ARS200 frá Ammann
Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandJarðvegsvaltari ARS200 frá Ammann
Ammann ARS 200 jarðvegsvaltarar, 20 tonn.
Ammann ARS 200 T4F jarðvegsvaltari hentar vel til vinnu þar sem öflugur þjöppunarkraftur er nauðsynlegur t.d. þar sem verið er að gera undirlag fyrir þungaflutningaframkvæmdir eins og á flugvöllum og við hafnir.
ARS200 jarðvegsvaltarinn er með fjölbreytta tíðni og margskonar þjöppunargetu sem gerir hann að hinum fullkomna valtara fyrir hinar ýmsu aðstæður.
Jarðvegsvaltari ARS 200 er með öruggan, rúmgóðan og hljóðdempaðan stjórnklefa með gríðarlega góðu útsýni sem veitir aukið öryggi á vinnusvæðinu. Fjölvirkur stjórn- og upplýsingaskjár er innbyggður í stýri valtarans.
Ýmsir valmöguleikar eru til að gera þennan ARS 200 valtara enn afkastameiri. T.d. er hægt að fá HX útgáfu af tromlum en þær skara fram úr á vinnustöðum þar sem þörf er á miklum togkrafti.
Jarðvegsvaltari ARS 200 er með ACEforce Intelligent Compaction kerfið sem bætir skilvirkni og gæði. Það býður upp á breytilega tíðni og mismunandi þjöppunargetu fyrir fjölbreyttar aðstæður. Þessi valtari er með mikil þjöppunarafköst og býður uppá meiri þjöppun á þykkt undirlag sem þýðir færri umferðir.
Aftur hlífin á þessum valtara opnast vel sem auðveldar og hraðar daglegu viðhaldi.
Jarðvegsvaltari ARS 200 er 19.750 kg að þyngd sem er svokölluð vinnuþyngd en þá er valtarinn með húsi og hálfan tank af eldsneyti.
Ammann jarðvegsvaltarar eru frábærir valtara sem henta vel til vinnu á Íslandi.
Jarðvegsvaltari ARS200 | Tier 4F |
Lengd valtara | 6688 mm |
Hæð valtara | 2985 mm |
Breidd valtara | 2258 mm |
Breidd tromlu | 2130 mm |
Þvermál tromlu | 1600 mm |
Vél | Deutz TCD 6.1 L6 |
Mengunarstaðlar | Tier 4F |
Vinnu þyngd | 19.750 kg |
Max ferðahraði | 12 km/klst |
Max vinnuhraði | 7 km/klst. |
Eldsneytistankur | 350 l |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.