Fara að upplýsingum um vöru
1 af 8

Ammann

Jarðvegsþjappa rafdrifin eAPF 12/40

Jarðvegsþjappa rafdrifin eAPF 12/40

Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.

Hafa samband

Rafdrifin jarðvegsþjappa eAPF 12/40 frá Ammann 

Jarðvegsþjappa með rafhlöðu fyrir vinnu í lokuðu rými

Jarðvegsþjappa eAPF 12/40 er með rafhlöðu sem gerir hana umhverfisvæna, með minna kolefnisfótspor, hún er hljóðlát og hægt er að nota hana við vinnu innandyra í lokuðu rými.

Jarðvegsþjappa rafdrifin með góða endingu á rafhlöðu

Jarðvegsþjappa eAPF 12/40 er með langlífa rafhlöðu sem hægt er að skipta út. Hleðsla rafhlöðunnar er hröð, örugg og einföld.  Þjappan er með einn ræs-og stopp rofa og auðvelt er að stýra henni.

Rafdrifin jarðvegsþjappa með afl á við bensín þjöppu

Jarðvegsþjappa eAPF 12/40 er 89 kíló að þyngd með 400mm vinnslubreidd. Hún er með hámarks titringstíðni upp á 100 Hz og skilar afli á við samsvarandi bensínknúna jarðvegsþjöppu.  

Jarðvegsþjappa með nýstárlegt handfang

Nýstárlegt handfang þjöppunnar dregur úr álagi á þann sem stýrir vélinni þar sem það einangrar titring. Einnig er hægt að brjóta það saman og fjarlægja þegar unnið er á lokuðu svæði eða við flutning.

Jarðvegsþjappa eAPF 12/40 með aukabúnaði

Með jarðvegsþjöppu eAPF 12/40 er m.a. hægt að fá eftirfandi aukabúnað:
Honda rafhlöðu
Honda hleðslutæki
Tímateljara
Flutningshjól
Malbikunarpúða

 

Jarðvegsþjappa eAPF 12/40
Þyngd 89 Kg
Þjöppunarkraftur  12 kN
Vél Rafdrifin Honda GXE 2.0 
Rafhlaða Honda DP72104Z
Hleðslutæki Honda CV7285Z
Breidd þjöppu 400 mm
Fleiri myndbönd eAPF 12/40
Vörunúmer
Skoða ítarlegar upplýsingar

Vantar þig nánari upplýsingar?

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.