Hellulagningavél
HellulagningavélHafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.
Hafa sambandHellulagningavél Vacu Mobil Allrounder frá Optimas
Hellulagningavél með sérstakan gripbúnað, sogskálar
Hellulagningavél Vacu Mobil Allrounder frá Optimas er sérhæfð vinnuvél með sérstakan gripbúnað þ.e. sogskálar, sem notuð er við hellulögn til að leggja hellur hratt og nákvæmlega niður.
Hellulagningavél sem auðveldar hellulagnir
Þessi hellulagningavél einfaldar og auðveldar starfsmönnum að lyfta og leggja þungar hellur og kantsteina um leið og hún dregur verulega úr líkamlegu álagi á starfsmenn.
Lítil, nett og meðfærileg hellulagningavél
Hellulagningarvélin er einstaklega nett og er því auðveldlega hægt að vinna með hana á litlum svæðum auk þess að hægt er að flytja hana á milli svæða á bílkerru.
Helstu kostir við notkun á hellulagningavél
Helstu kostir eru hraði og afköst en einn maður getur lagt allt að nokkur hundruð fermetra á dag og gæðin aukast þar sem vélin tryggir jafnt bil á milli hellna og þrýstir þeim jafnt niður á undirlagið.
Myndbönd sem sýna hvernig unnið er með hellulagningavél
Hér eru nokkur myndbönd sem sýna hvernig unnið er með þessa hellulagningavél:
Sandhefill notaður með hellulagningavél
Þungar hellur lagðar með hellulagningavél
Kennt á hellulagningavél
| Hellulagningavél | Vacu-Mobil-Allrounder |
| Burðargeta bómu | 150 kg |
| Mótor | Bensínvél, Vanguard 400 10,4 kW, 14 hestöfl |
| Eigin þyngd | 900 kg |
| Snúningsvið kranaarms | 360° með vinnusvið 3,0m |
| Flutningsmál | L 2800 x B 1050 x H 2100 mm |
| Vörunúmer | 58501989 |
Deila

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.