Fylliefni fyrir litlar glufur á steingólfum
Fylliefni fyrir litlar glufur á steingólfum
Fylliefni GM3000 frá Husqvarna er einstaklega gott múrefni til að fylla upp í smáar glufur og örlitlar sprungur í steyptu yfirborði.
Fylliefni fyrir steypt yfirborð, steingólf og Terrazzo
Fylliefni GM3000 hentar vel á steypt yfirborð, steingólf og Terrazzo. Það hentar einnig á háglans slípuð gólf þar sem æskilegt er að fylla upp í mjög litlar glufur í gólfinu.
Fylliefni í vökvaformi tilbúið til notkunar á steingólf
Fylliefni Husqvarna GM3000 er múrefni í vökvaformi sem er tilbúið til notkunar. Mjög auðvelt er að dreifa fylliefni GM3000 yfir gólfið og slípa niður í yfirborð á steinsteyptu gólfi.
Fylliefni blandast slípiryki og fer í sprungur á steingólfum
Þegar búið er að dreifa fylliefni GM3000 á viðkomandi yfirborð og slípun hefst, blandast fylliefnið við slípirykið sem þrýst er í þær holur og sprungur sem fylla þarf uppí og herðist þar.
Fylliefni GM3000 fyrir meðalstór og stór gólf
Fylliefni GM 3000 frá Husqvarna hentar vel fyrir meðalstóra og stóra gólffleti. Þetta fylliefni hentar vel til notkunar innanhúss.
Kostir fylliefnis GM3000 m.a. að það gulnar ekki
- Fylliefni sem er auðvelt í notkun og því ákjósanlegt fyrir stóra fleti.
- Andar, stöðvar UV geisla og mun ekki gulna.
- Ekki eldfimt né eitrað og lítil lykt.
Husqvarna fylliefni | GM 3000 |
Magn | 20 lítrar |
Öryggisblað | Öryggisblað Fylliefni GM3000 |
Tæknilegar upplýsingar | Tæknilýsing Fylliefni GM3000 |
Vörunúmer | 96581921806 |
Deila
Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.