1
/
af
4
Forsía fyrir lofthreinsitæki A45 þvoanleg 5stk í pakka
Forsía fyrir lofthreinsitæki A45 þvoanleg 5stk í pakkaVenjulegt verð
25.489 kr
Venjulegt verð
Tilboðsverð
25.489 kr
Einingaverð
/
hvert
með VSK.
Þvoanleg forsía fyrir lofthreinsitæki A45 frá Husqvarna 5 stykki í pakka, Prefilter A45
Endurnýtanleg forsía úr svampi
Endurnýtanleg forsía úr svampi fyrir Husqvarna A45 lofthreinsitæki. Sían fangar gróft ryk og lengir líftíma HEPA síunnar sem er aðal sían í tækinu.
Forsía sem hægt er að þvo
Þessa forsíu er hægt að þvo og endurnýta. Hún virkar sem fyrsta vörn í A45 lofthreinsara og fangar stórar rykagnir og byggingarryk áður en loftið fer í gegnum Hepa síuna.
Regluleg skipti eða hreinsun á forsíu lengir líftíma
Mikilvægt er að skipta reglulega um venjulega forsíu eða hreinsa þvoanlega forsíu til að viðhalda hámarks sogkrafti og lengja líftíma HEPA síunnar.
Þrif og viðhald á forsíu fyrir A45
- Taktu síuna úr tækinu og hristu laust ryk af henni eða ryksugaðu varlega
- Skola skal síuna með volgu vatni þar til allt ryk er farið úr henni. Forðast skal sterk hreinsiefni eða háþrýstiþvott en slíkt getur skemmt svampinn í síunni.
- Kreistu mesta vatnið varlega úr síunni og láttu hana þorna alveg áður en hún er sett aftur í tækið. Aldrei skal setja blauta síu í lofthreinsitækið.
Vörunúmer: 96540215601
Deila

Vantar þig nánari upplýsingar?
Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.