Fara að upplýsingum um vöru
1 af 4

Husqvarna

Forsía fyrir lofthreinsitæki A100 þvoanleg 5stk í pakka

Forsía fyrir lofthreinsitæki A100 þvoanleg 5stk í pakka
Venjulegt verð 36.287 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 36.287 kr
Tilboð Uppselt
með VSK.

Þvoanleg forsía fyrir lofthreinsitæki A100 frá Husqvarna 5 stykki í pakka, Washable Prefilter A100

Forsía úr svampi sem er endurnýtanleg

Endurnýtanleg forsía úr svampi fyrir Husqvarna A100 lofthreinsitæki. Sían sem fangar gróft ryk og lengir líftíma HEPA síunnar í lofthreinsitækinu.

Forsía sem hægt er að þvo til að nota aftur og aftur

Þessa forsíu er hægt að þvo og nota aftur og aftur. Þetta er fyrsta vörnin í A100 lofthreinsara og fangar stórar rykagnir og byggingarryk áður en loftið fer í gegnum Hepa síuna.

Forsíu þarf að skipta út reglulega

Reglulega þarf að skipta um venjulega forsíu. En ef keypt er þvoanleg forsía er hægt að hreinsa hana reglulega og nota áfram. Mikilvægt er að hafa hreinar forsíur til að viðhalda hámarks sogkrafti og lengja líftíma HEPA síunnar.

Svona á að þrífa og viðhalda svamp-forsíu fyrir A100

Athuga skal að ekki er hægt að þvo venjulegar forsíur, eingöngu forsíur sem sérstaklega eru til þess gerðar og eru úr svampi.

  • Taktu síuna úr tækinu og hristu laust ryk af henni eða ryksugaðu varlega
  • Skola skal síuna með volgu vatni þar til allt ryk er farið úr henni. Forðast skal sterk hreinsiefni eða háþrýstiþvott en slíkt getur skemmt svampinn í síunni.
  • Kreista skal mesta vatnið varlega úr síunni og láta hana þorna alveg áður en hún er sett aftur í tækið. Aldrei skal setja blauta síu í lofthreinsitækið.

Vörunúmer: 96540215701

Husqvarna

Skoða ítarlegar upplýsingar
Vantar þig nánari upplýsingar?

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.