Fara að upplýsingum um vöru
1 af 7

Nissen

Árekstrarpúði árekstrarvarnir GUARDIAN TMA

Árekstrarpúði árekstrarvarnir GUARDIAN TMA

Hafðu samband til þess að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.

Hafa samband

Árekstrarvarnir Guardian er árekstrarpúði TMA frá Nissen sem er hágæða öryggisbúnaður fyrir vinnusvæði og merkingar fyrir vegaframkvæmdir.

Guardian árekstrarpúði höggdeyfandi árekstrarvernd TMA

Guardian árekstrarpúðinn frá Nissen er hreyfanlegt árekstrarkerfi fyrir aukið vinnu- og umferðaröryggi við vegaframkvæmdir eða höggdeyfandi árekstrarvernd TMA Truck Mounted Attenuator.

Árekstrarpúði Guardian uppfyllir alþjóðlega staðla um TMA

Guardian árekstrarpúði er nýstárleg lausn frá Nissen sem uppfyllir alþjóðlega staðla um TMA Truck Mounted Attenuator eða höggdeifandi árekstrarvarnir og sker sig úr á margan hátt.

Árekstrarpúði með tvöfalda vernd með ljós og höggdeyfi

Við lokun akbrauta veitir árekstrarpúði Guardian tvöfalda vernd fyrir starfsfólk, vegfarendur og vinnutæki þ.e. með frábærri lýsingu ljósaörvar og með árekstrarpúðanum ef aftanákeyrsla verður.

Árekstrarpúði með höggpúða og tengikví fyrir ökutæki

Guardian árekstrarpúði samanstendur af stillanlegu viðvörunarskilti fyrir viðvörunarmerki eða lokunarmerki, höggpúða til að taka við höggi af árekstri og tengikví fyrir festingu við ökutækið.

Árekstrarpúðinn opnaður á framkvæmdastað

Þegar farartæki er á ferð er árekstrarkerfið dregið til baka en á framkvæmdastað er kerfið virkjað, árekstrarpúðinn opnaður og viðvörunarskilti virkjuð. Engin frekari uppsetning er nauðsynleg.

Öryggipúði Guardian fyrir mismunandi aðstæður

Hægt er að útbúa Guardian öryggispúðann með nánast öllum öryggisljósum, ljósaörvum og LED öryggisskiltum svo það henti sem allra best við mismunandi aðstæður hverju sinni.

Reglur um vinnusvæðamerkingar með TMA

Á vef Vegagerðarinnar má sjá reglur um vinnusvæðamerkingar - 17. útg. mars 2021. Á bls 24 er hægt að sjá reglur um höggdeyfandi árekstrarvarnir eða TMA.

Skoða ítarlegar upplýsingar

Vantar þig nánari upplýsingar?

Þú getur haft samband við sölumenn okkar hjá Wendel
í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um þessa vöru.