Nýr umhverfisvænn rafdrifinn valtari eARX 26-2

Nýr umhverfisvænn rafdrifinn valtari eARX 26-2

Á vélasýningu BAUMA 2022 kynnti Ammann nýjan rafdrifinn valtara eARX 26-2 sem getur unnið í allt að 8 klukkustundir og jafnvel í einhverjum tilfellum lengur án endurhleðslu.

Valtari sem er einstaklega hljóðlátur

Þessi valtari er einstaklega hljóðlátur og hljóðstyrkur sem berst á stjórnpallinn er allt að 46% minni en í valtara með diesel vél.

Valtari með 48 volta rafhlöðupakka

Valtari eARX 26-2 er með háþróaðan 48 volta rafhlöðupakka með afkastagetu upp á 600 Ah/31,5kWh. Rafhlöðupakkinn er meðLiFePO4 þar sem hver rafhlaða er sérstaklega varin.

Valtari sem auðvelt og hratt er að hlaða

Tvær hleðsluleiðir eru í boði:
Innbyggt hleðslutæki, 50amp hleðslukerfi, 12klst hleðslutími (frá 0% til 100% rafhlöðugetu)
Ytra hleðslutæki, 200amp hleðslukerfi, 3,5 klst hleðslutími (frá 0% til 100% rafhlöðugetu)

Sjálfvirk viðvörun þegar hleðsla fer niður

Fylgst er með hleðslustigi rafhlöðunnar. Sjálfvirk viðvörun er sýnd þegar hleðsla fer niður í 10%. Ef hleðsla fer niður í 3% slekkur kerfið á titringnum til að hægt sé að fara með vélina á hleðslusvæði.

Hér má sjá frétt frá Ammann um þennan nýja rafdrifna valtara. 

Nýr umhvefisvænn valtari

Nýr umhverfisvænn valtari

Við hjá Wendel ehf erum gríðarlega ánægð með að geta bætt þessum nýja umhverfisvæna valtara við vöruúrvalið okkar.

Til baka