ABG 2870 er fyrirferðalítil og hljóðlát malbikunarvél með malbikunargetu uppá 330 t/klst en í maí 2026 fékk Malbikstöðin ehf afhenta nýja slíka vél sem er malbikunarvél á hjólum frá Ammann.
Útlagning á rauðu malbiki með nýrri malbikunarvél
Fyrsta útlagningin með nýju vélinni var lagning á rauðu malbiki hjá nýju sorpflokkunarstöðinni og gekk það verkefni virkilega vel.
Við óskum Malbikstöðinni innilega til hamingju með malbikunarvélina og vonum að hún eigi eftir að reynast vel við malbikun næstu árin.
Á myndunum sem fylgja hér með má einnig sjá annan af tveim nýjum malbiksvölturum frá Ammann sem Malbikstöðin fékk afhenta fyrr á þessu ári.




