Vorum að afhenda Malbikstöðinni þessa tvo nýju og öflugu litlu malbiksvaltara frá Ammann.
Valtarar með eins metra breiðar tromlur
Þessir ARX-20-2 malbiksvaltarar eru með sparneytna Kubota diselvél, eins metra breiðar tromlur, góða háþróaða akstursstýringu, 110 lítra vatnstank og upphituð sæti fyrir ökumann.
Stjórntækin eru mjög vel staðsett og með góðu aðgengi að öllum rofum.
Valtarar sem valta og þjappa alveg upp við veggi
Hægt er að láta þessa valtara valta og þjappa alveg upp við veggi sem er gríðarlega góður kostur. En allir valtarar frá Ammann sem eru í flokki ARX 10.1 til ARX 20-2 hafa þessa eiginleika.
Við óskum Malbikstöðinni innilega til hamingju með valtarana og vonum að þeir reynist þeim vel í þeim malbikunarframkvæmdum sem framundan eru.
Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um þessa malbiksvaltara


