Árið 2026 er Wendel meðal 2,5% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði að vera Framúrskarandi fyrirtæki og meðal 5,4% fyrirtækja sem Fyrirmyndarfyrirtæki i rekstri.
Wendel hefur verið Framúrskarandi fyrirtæki í 10 ár!
Það þýðir að í 10 ár eða frá árinu 2017 til 2026 hefur fyrirtækið verið á meðal Framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo sem er algjörlega frábær árangur.
Wendel er Fyrirmyndarfyrirtæki árið 2026
Wendel er einnig Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026 og er meðal 5,4% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar og er þetta í níunda skipti sem fyrirtækið uppfyllir þessi skilyrði.
Þökkum frábæru starfsfólki og traustum viðskiptavinum
Við erum gríðarlega stolt af því að hljóta þessar viðurkenningar og þökkum það okkar frábæra starfsfólki og traustu viðskiptavinum. Þessar viðurkenningar eru auk þess hvatning til að halda áfram á sömu braut.