Wendel framúrskarandi og fyrirmyndar fyrirtæki 2020

A.Wendel ehf er í landsliðinu í rekstri árið 2020

Í haust fékk A.Wendel ehf viðurkenningu Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki árið 2020 og er því á meðal 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo.

Wendel fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2020

Einnig fékk A.Wendel ehf viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2020 og er þar með í hópi 2,8% fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar. 

Wendel uppfyllir strangar kröfur og skilyrði 2020

Til að teljast Framúrskarandi og Fyrirmyndar fyrirtæki þarf að uppfylla strangar kröfur og skilyrði og gefa vísbendingar um að fyrirtækin séu líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur.

Fjórða árið í röð sem Wendel fær viðurkenningar

Við erum virkilega stolt af þessum viðurkenningum og er þetta fjórða árið í röð sem við náum þessum árangri en markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur þar að baki.

Wendel fær viðurkenningar 2020
Til baka