Að velja gólfslípiverkfæri með Tool Selector á vef Husqvarna er bæði einfalt og þægilegt auk þess sem það er mikilvægt sjá hverju Husqvarna mælir með svo hægt sé að kaupa réttu demantsverkfærin og efnin fyrir hvert og eitt gólfslípiverkefni.
Að ná réttri áferð á gólf með gólfslípun snýst ekki aðeins um hvaða gólfslípivél er notuð heldur einnig um val á demantsverkfærum og efnum. Að vita nákvæmlega hvaða slípiverkfæri, demanta, padsa, slípiklossa, þéttiefni, fylliefni og herði á að nota og í hvaða röð getur verið áskorun jafnvel fyrir reyndustu fagmenn og sérfræðinga.
Hvert og eitt verkefni er einstakt og Tool Selector er eins og stafrænn aðstoðarmaður. Víðtæk notkunarþekking Husqvarna og sérfræðiþekking þeirra á demantaverkfærum sameinast þar á einum stað svo hægt sé að nálgast upplýsingar um ákjósanlegasta sett af demantsverkfærum og efnum til að nota fyrir hvert verkefni.
Þegar Tool Selector er notað er byrjað á að velja hvernig gólf á að vinna og þá áferð á sem ætlunin er að fá. Þá er skráð stærð eða fermetrafjöldi á gólffleti og hvaða slípivél ætlunin er að nota. Þegar öll þessi viðmið hafa verið slegin inn þá kemur listi yfir slípiklossa, slípipadsa og efni sem mælt er með að nota og er þetta birt í réttri notkunarröð.