Fræðsluefni um hvernig skipta eigi um forsíu og hreinsa Hepa síu í lofthreinsi A1000 og A2000 frá Husqvarna.
Hvenær á að skipta um forsíu í lofthreinsi frá Husqvarna?
Gula ljósið á bakhliðinni segir til um hvenær tími sé kominn til að skipta um forsíu í lofthreinsi A1000 og eða A2000 frá Husqvarna.
Ekki þrífa forsíur á lofthreinsibúnaði frá Husqvarna
Aldrei ætti að þrífa forsíur á lofthreinsunartækjum A1000 og A2000. Ef forsíur eru hreinsaðar geta þær verið eyðilagðar sem gæti leitt til að fleiri rykagnir berist í HEPA síuna.
Þegar búið er að skipta um forsíu á lofthreinsibúnaði
Eftir að skipt hefur verið um forsíu og Hepa sían verið hreinsuð á lofthreinsibúnaði A1000 eða A2000 er mikilvægt að ganga úr skugga um að engin viðvörunarljós blikki á baklið lofthreinsibúnaðarins.
Svona áttu að bera þig að við að skipta um forsíu á A1000
Hér má sjá myndband sem sýnir vel hvernig á að bera sig að við að skipta um forsíu og hreinsa Hepa síu í lofthreinsi A1000 og A2000 frá Husqvarna.