Fræðsluefni um hvernig setja eigi nýja áfyllingu af Longopac slöngupokum í iðnaðarryksugur frá Husqvarna.
Skipt um longopac poka áður en komið er að 22 metrum
Rúlla með Longopac slöngupokum er 22 metra löng og passa þarf uppá að skipta um pokarúllu áður en komið er að 22 metra merkingunni.
Svona tekur þú gömlu longopac rúlluna af
Þegar skipt er um pokarúllu er byrjað á því að losa um bandið sem heldur slöngupokunum á vélinni og taka gömlu rúlluna af.
Ný rúlla af longopac ryksugupokum sett upp
Þegar nýja rúllan er sett á þarf að passa uppá að festa pokana með bandinu aftur og gera fyrsta pokann kláran með því að loka fyrir opið neðst á pokarúllunni.
Hér má sjá myndband sem sýnir vel hvernig á að bera sig að við að setja nýja rúllu af slöngupokum í ryksugur.



