Slitblöð fyrir snjótennur

Endingargóð og hljóðlát slitblöð, slitstál og plógskíði fyrir snjótennur til að rífa upp ís, klaka og harðpakkaðan snjó á vegum. Einnig slitblöð og slitstál fyrir viðkvæmt undirlag.

Öflug slitblöð, slitstál og plógskíði fyrir snjótennur

Fjölmargar tegundir slitblaða, slitstáls og plógskíða  t.d. með öflugum tönnum, sléttum blöðum með beinum eða beygðum endum, slitblöð með gatamynstri, gúmmíblöð og karbítblöð.

Hvaða slitstál eða slitblöð á að velja hverju sinni?

Mikilvægt er að nota rétt slitstál til að ná sem bestum árangri. Olafsfors hefur tekið saman ráðleggingar í töflu þar sem þeir mæla með notkun á ákveðnu slitstáli miðað við ástand og gerð vega.