Vélar fyrir yfirborðsmerkingar og vegamálun

Vélar fyrir yfirborðsmerkingar og vegamálun frá Borum í Danmörku einnig kallaðar línumerkingarvélar.

Margar útfærslur véla fyrir götumerkingar og vegamálun

Hægt er að fá ýmsar útfærslur línumerkingarvéla fyrir yfirborðsmerkingar og vegamálun á vegum utan og innan þéttbýlis auk merkinga fyrir flugvelli.

Vélar fyrir götumerkingar og vegamálun með Thermo plasti

Hægt er að fá þessar vélar fyrir götumerkingar, vegmálun og  yfirborðsmerkingar með Thermo plasti eða hitaþjálum massa.  

Línumerkingarvél með tvo liti í einu og breidd allt að 125cm

Línumerkingarvélar Borum fyrir yfirborðsmerkingar og götumerkingar geta notað tvo liti í einu og eru með málningarbreidd allt að 125cm. Einnig geta þær stráð glitri eða endurskins-perlum í málninguna.

Línumerkingarvél með mikla vinnslubreidd fyrir flugvelli

Línumerkingarvél BM2700CA fæst sérstaklega útbúin með mikla vinnslubreidd fyrir yfirborðsmerkingar á flugvöllum en vélin fæst í mismunandi útfærslum eftir því hvers konar merkingar hún er ætluð í.

Aðrar vélar og aukahlutir fyrir vegamálun

Vélar og aukahlutir frá Borum t.d. forhitarar fyrir thermoplast, kassar fyrir handmálun gangbrauta, græjur sem fjarlægja línumerkingar og aðrar til að þurrka yfirborð.

 

Tæknilegar upplýsingar

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um vélar fyrir línumerkingar, vegamálun, götumerkingar og yfirborðsmerkingar.

 

Vélar fyrir yfirborðsmerkingar og vegamálun

BORUM A/S

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur